Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur lokið skoðun sinni á atviki þar sem lögreglumaður skipaði manni að eyða upptöku af því þegar lögregla handtók mann í Reykjanesbæ í maí.
Maðurinn brenndist illa. Hann hellti yfir sig eldfimum vökva. Lögreglumenn beittu rafbyssu á hann. Lögregla telur að maðurinn hafi borið eld að sér eftir að lögregla beitti rafbyssunni á hann. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Noregs með alvarleg brunasár um allan líkamann.
Eftirlitsnefndin ákvað að hefja frumkvæðisathugun eftir að fjölmiðlar fluttu fréttir af því að lögreglumaður hefði skipað almennum borgara að eyða upptöku af handtöku mannsins. Sjónarvottur hafði tekið upp samskipti lögreglu og mannsins sem brann.
Í umfjöllun nefndarinnar er vísað til þess að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi komist að þeirri niðurstöðu að lögreglumenn hefðu gert mistök þegar þeir fyrirskipuðu eyðingu myndbandsupptökunnar. Til þess höfðu þeir ekki lagaheimild.
Lögreglustjórinn sagði í bréfi til nefndarinnar að lögreglumennirnir hefðu aðeins ætlað að vernda viðkvæma persónulega hagsmuni, mannlega reisn og friðhelgi einkalífs mannsins sem slasaðist. Réttara hefði verið að lögreglumenn legðu hald á símann með upptökunni. Þá hefði verið hægt að afrita hann og skila að gefnu samþykki eigandans eða fengnum dómsúrskurði.
„LSS getur upplýst að ítrekað hefur verið við lögreglumenn embættisins að það sé ekki heimilt að krefjast eyðingu myndefnis sem borgarar taka. Þá hefur verið áréttað að hafi myndefni sönnunargildi sé heimilt að leggja hald á símtæki þ.e. sé um mögulega rannsóknarhagsmuni að ræða,“ segir í bréfi lögreglustjórans til nefndarinnar.
Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar. Það var vegna þess að ítrekað hafði verið fyrir lögreglumönnum að þeir mættu ekki fyrirskipa eyðingu myndefnis af aðgerðum lögreglu og að embættið á Suðurnesjum hefði viðurkennt að mistök hefðu verið gerð.