Sigurður Helgi Pálmason, varaformaður utanríkismálanefndar, telur að betra hefði verið ef nefndin hefði fengið að vita fyrr af símtali Donalds Trump til Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, stuttu fyrir alþingiskosningar 2024. Málið var fyrst rætt á síðasta fundi utanríkismálanefndar.
„Ég held að það hefði verið betra ef við hefðum vitað af þessu fyrr. Ég held að það hefði verið mjög gott fyrir utanríkismálanefnd að vita af þessu samtali. Það er nú þannig að þó að Trump sé nú oft sko það er ekki mikið samhengi hjá Trump en þá er það mjög mikilvægt í alþjóðamálum að það sé þetta ákveðna samhengi,“ segir Sigurður.
RÚV greindi frá því í gær að Trump, sem þá var ekki orðinn Bandaríkjaforseti, hefði hringt í Bjarna skömmu fyrir þingkosningar 2024. Þar hefði hann meðal annars sagt í gamansömum tón að í hópi vina sinna og vandamanna hefði stundum verið rætt um að Ísland væri 51. ríki Bandaríkjanna. Bjarni mun hafa eytt þessu tali og tekið því sem léttu gríni, Trump hafi þó sagt honum að hugsa þetta vel að loknum kosningasigri.
Sigurður segir að trúnaður ríki um fund utanríkismálanefndar og því geti hann ekki efnislega tjáð sig um það sem var rætt. Ekki hafi verið komist að niðurstöðu á fundi nefndarinnar.
„Þarna fær í rauninni nefndin bara að vita af þessu samtali og svo er náttúrulega bara spurning hvað verður gert í framhaldi af því, það er að segja hvort nefndin hyggist gera eitthvað en ég held að það sé, ég veit ekki til þess að það sé búið að setja það eitthvað sérstaklega á dagskrá,“ segir Sigurður.
Utanríkismálanefnd kemur aftur saman á miðvikudaginn í næstu viku.