Flugfélagið easyJet hefur breytt mæligrindum fyrir handfarangur á Gatwick-flugvelli í London eftir að Aðalsteinn Svan Hjelm kærði félagið fyrir að rukka hann aukalega fyrir tösku. Þar sem Aðalsteinn hafði ferðast með töskuna víða án vandræða ákvað hann að borga en sætta sig ekki við rukkunina. Við tóku kvartanir, tölvusamskipti og kvartanir sem enduðu með að flugfélagið bað Aðalstein afsökunar, endurgreiddi honum og breytti farangursgrindunum eins og áður sagði.
Aðalsteinn lagði easyJet eftir margra mánaða kæruferli - „Réttlætið sigrar semsagt alltaf að lokum“