Skemmtiferðaskipið Hondius lagði af stað frá Tenerife til heimahafnar í Hollandi í gærkvöld. Síðustu farþegar fóru frá skipinu í gærdag. Búist er við að skipið komi til Rotterdam á sunnudagskvöld.
Alls eru þrír látnir eftir hantaveirusmit; hollensk hjón og þýsk kona. Að minnsta kosti sex einstaklingar hafa greinst með jákvætt hantaveirusmit eftir að þeir fóru af skipinu og 17 bandarískir ríkisborgarar sem voru um borð í skipinu sýna væg einkenni hantaveirusmits og eru í einangrun. Þá er einn Breti sem fór af skipinu í Tristan da Cunha líklega smitaður.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur litlar líkur á útbreiðslu hantaveirufaraldurs.