Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí. Alls var 370 starfsmönnum sagt upp störfum á þessum fjórum stöðum.
Í tilkynningu frá Vinnumálastofnun segir að flestir þeirra, alls 270 manns, hafi starfað í gistiþjónustu, en er þar um að ræða uppsagnir á tveimur hótelum Berjaya sem greint var frá í maí.
Sjávarútvegur, fjármálaþjónusta og ferðaþjónusta
Störfuðu þessir tæplega 300 starfsmenn Berjaya á hótelunum Hilton Nordica og Natura en Íslandshótel mun innan tíðar taka yfir rekstur hótelanna. Búist er við því að Íslandshótel muni endurráða starfsmennina.
37 var sagt upp hjá Rapyd á Íslandi fyrr i mánuðinum í tengslum við aukna innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækinu á alþjóðavísu.
Þá greinir Vinnumálastofnun frá því að 37 manns hafi sömuleiðis verið sagt upp hjá fyrirtæki sem starfar í sjávarútvegi en ekki hefur verið greint frá þeim uppsögnum áður.
Fjórða hópuppsögnin sem greint er frá varðar 26 manns sem sagt var upp í kjölfar skipulagsbreytinga hjá Bláa lóninu.