Nú liggur fyrir hvaða íslensku keppendur fara á heimsleika Special Olympics sem fram fara í Santiago, Síle, í október árið 2027. Special Olympics á Íslandi fær kvóta í ákveðnum greinum og óskað er tilnefninga. Árangur er ekki mælikvarði við val á heimsleika Special Olympics og leikarnir byggja því á allt öðru keppnisformi en Paralympics eða Ólympíumóti fatlaðra. Skipt er í styrkleikaflokka og allir fá verðlaunapeninga eða verðlaunaborða.
23 íslenskir keppendur fara á Special Olympics 2027