21 árs gömul kona sem var á leið í teygjustökk lést með hörmulegum hætti í Brasilíu um helgina þegar henni var kastað fram af brú án þess að vera tengd við öryggisbúnað.
Konan, Maria Eduarda Rodrigues de Freitas, hrapaði til bana eftir að henni var kastað fram af svokallaðri Skeleton-brú í borginni Limeira í São Paulo-ríki á laugardag. Myndskeið af atvikinu hefur farið víða um samfélagsmiðla og vakið mikla reiði meðal almennings.
Á upptökunni sést Rodrigues de Freitas vera með hjálm og öryggisbeisli, en hún var aftur á móti ekki fest við teygjustökksreipi þegar stökkið hófst. Tveir starfsmenn báru hana að brúninni og köstuðu henni síðan fram af.
Vitni á vettvangi heyrðust hrópa í örvæntingu um leið og konunni var sleppt: „Reipið, fólk, reipið!“.
Brasilísk yfirvöld hafa handtekið sex einstaklinga vegna málsins. Tveir þeirra reyndu að flýja af vettvangi en fundust síðar með aðstoð þyrlu. Þrír hafa verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi en talið er að Maria hafi látist samstundis.
Andrea Dantas Levy, rannsóknarlögreglukona í málinu, sagði í samtali við brasilíska fjölmiðla að fyrirtækið sem sá um stökkið hefði ekki haft tilskilin leyfi til starfseminnar á staðnum.
Örfáum mínútum fyrir slysið birti Maria færslu á Instagram þar sem hún sýndi frá undirbúningi stökksins. Með myndinni skrifaði hún í léttum tón: „Hver var þessi brjálaði einstaklingur sem leyfði mér að koma og stökkva fram af brú?“
Í frétt Mail Online, sem vitnar til brasilískra fjölmiðla, hafði Maria nýlega lokið háskólagráðu í íþróttafræði og íþróttastjórnun og starfaði sem líkamsræktarkennari. Vinir, fjölskylda og samstarfsfólk hafa minnst hennar á samfélagsmiðlum sem glaðlyndrar, metnaðarfullrar og vinsællar ungrar konu sem átti sér marga drauma.