Húsvíkingar héldu Mærudaga um helgina og lögreglan hafði öflugt eftirlit með umferðinni.
Sautján ára ökumaður var tekinn á 168 kílómetra hraða á klukkustund í Aðaldal þar sem hámarkshraði er 90. Hann var sviptur ökuréttindum og færður á lögreglustöð. Alls voru 42 kærðir fyrir of hraðan akstur og einn tekinn ölvaður undir stýri.
Árekstur í Vaðlaheiðagöngunum
Tveir bílar skullu saman í Vaðlaheiðargöngum seint í gærkvöld. Minniháttar meiðsl urðu á fólki en bílarnir skemmdust mikið. Göngunum var lokað á meðan þeir voru fjarlægðir. Kári Erlingsson lögregluvarðstjóri segir að talið sé að annar bílstjórinn hafi sofnað undir stýri, hinn var ölvaður.
Að öðru leyti hafi allt gengið vel um helgina. Mærudagar hafi tekist sérstaklega vel. Þar var margt um manninn þrátt fyrir haustlegt veður og fá mál komu til kasta lögreglu.