Drunur frá sprengingum eða vinnuvélum hafa verið hluti af hversdegi Norðfirðinga síðustu misseri, eða síðan 2024 þegar framkvæmdir hófust við lokaáfanga snjóflóðavarna ofan Neskaupstaðar.
Vinna við varnargarða ofan við bæinn hefur gengið vel í sumar og er á undan áætlun. Fjórtán varnarkeilur hafa risið ofan bæjarins og síðasti þvergarðurinn af fjórum er nær fullbyggður.
Alls eiga að rísa fjórir stærðarinnar þvergarðar og tuttugu ofanflóðavarnakeilur, en verkinu var flýtt eftir að snjóflóð féllu á óvarin hús í mars 2023.
Svanur Freyr Árnason, sem stýrir skipulags- og framkvæmdasviði hjá Fjarðabyggð, segir farið að sjá fyrir endann á vinnunni þetta sumarið.
„Það er búið að setja 14 keilur af 20 og verið að sá í fláa og annað á bæði þvergarða og keilur jafnóðum og það kemur upp. Þvergarðurinn er kominn upp að 70% leyti, sem sagt kominn í hæð á 750 metra kafla af 810 metrum. Þannig þetta bara rokgengur hjá þeim,“ segir Svanur.
Þetta eru stærðarinnar mannvirki og breyta talsvert ásýnd bæjarins, þvergarðarnir eru 820 metra langir og mest tæplega tuttugu og tveggja metra háir.
Í kringum garðana hefur verið útbúið útivistarsvæði, sem verkstjórinn segir hafa verið vel tekið og fyrsta strandblakmótið haldið á glænýjum blakvelli þar í sumar.
Endanleg verklok eru áætluð 2029.