Ómar Magni Halldórsson er aðeins 17 ára gamall en hefur þegar lokið rafvirkjanámi og fengið sveinsbréfið sitt afhent. Samkvæmt Verkmenntaskólanum á Akureyri er hann yngsti rafvirki í sögu Íslands til að fá sveinsbréf í faginu.
Ómar Magni tók við bréfinu við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 25. september.
Byrjaði áður en hann varð 15 ára
Ómar Magni hóf nám í rafvirkjun við VMA haustið 2023, þá tæplega 15 ára gamall. Hann útskrifaðist síðastliðið vor og tók sveinsprófið í júní, aðeins nokkrum dögum eftir brautskráninguna.
Samhliða náminu vann hann við rafvirkjun og safnaði þeirri starfsreynslu og þeim verkefnum sem þarf að skrá í ferilbók.
Alls fengu 19 rafvirkjar og fjórir rafeindavirkjar sveinsbréf sín afhent við athöfnina í Hofi. Meirihluti rafvirkjanna hafði stundað nám við VMA og allir fjórir rafeindavirkjarnir komu þaðan.
Ómar Magni býr á Svalbarðseyri og starfar hjá Rafeyri á Akureyri. Hann verður ekki 18 ára fyrr en í nóvember.