Brot fyrrverandi forstjóra Innheimtustofnunar sveitarfélaga voru svo alvarleg að þau réttlættu fyrirvaralausa brottvikningu úr starfi. Þetta er niðurstaða héraðsdóms Vestfjarða sem hafnaði kröfu forstjórans fyrrverandi um bætur vegna uppsagnarinnar.
Í ársbyrjun 2022 greindi Kveikur frá því að Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga, hefði gert samning við lögmannsstofu forstöðumanns stofnunarinnar á Ísafirði, Braga Rúnars Axelssonar, um innheimtuverkefni án vitundar og vitneskju stjórnar. Báðir voru þeir reknir og síðar handteknir í aðgerðum á vegum héraðssaksóknara.
Jón Ingvar höfðaði mál á hendur stofnuninni og krafðist rúmlega 90 milljóna króna vegna ólögmætrar uppsagnar auk miskabóta.
Málið kom fyrir dóm fyrir þremur árum en var frestað vegna rannsóknar héraðssaksóknara. Þeirri rannsókn lauk í febrúar og er málið á borði ákærusviðs þar sem tekin verður ákvörðun um hvort ákærur verði gefnar út. Jón Ingvar og Bragi eru með réttarstöðu sakbornings.
Jón Ingvar hafði hvorki erindi né erfiði í málarekstri sínum gegn Innheimtustofnuninni. Þvert á móti er farið hörðum orðum um framgöngu hans í starfi forstjóra. Í dómsniðurstöðu segir að ekki verði dregin önnur ályktun en að hann hafi brugðist alvarlega stjórnunar- og trúnaðarskyldum sínum gagnvart þáverandi stjórn Innheimtustofnunar.
Orðrétt segir í dómnum: Stefnda var því heimilt að rifta ráðningarsamningi stefnanda og víkja honum úr starfi án fyrirvara. Horft er jafnframt til þess að hér er um svo stórfellt brot á trúnaði að ekki verður bætt úr.
Var öllum kröfum Jóns Ingvars hafnað og honum gert að greiða eina og hálfa milljón króna í málskostnað.