Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, kemur til Grænlands í fylgd með Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, á sunnudag. Stefnt er að því að undirrita yfirlýsingu um aukið samstarf Evrópusambandsins og Grænlands. Sambandið hefur lagt til að stuðningur við Grænland verði tvöfaldaður á sjö ára tímabili frá 2028.
Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, segir í yfirlýsingu að hann hlakki til heimsóknarinnar. ESB hafi stutt við Grænlendinga á umbrotatímum og brugðist á jákvæðan hátt við viðleitni þeirra til aukins samstarfs.
Mikið hefur mætt á stjórnvöldum á Grænlandi og í Danmörku vegna ítrekaðra yfirlýsinga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að hann ætli sér að ná yfirráðum yfir Grænlandi.
Von der Leyen hefur áður komið til Grænlands. Í mars 2024 opnaði hún skrifstofu framkvæmdastjórnarinnar í Nuuk og undirritaði samstarfsyfirlýsingu við stjórnvöld.
Á mánudag er lögmaður Færeyja, Beinir Johannesen, væntanlegur til Grænlands. Hann fundar með forsætisráðherra Danmerkur og formanni landsstjórnar Grænlands um sameiginlega hagsmuni landanna. Nielsen segir í fyrrnefndri yfirlýsingu að á tímum sem þessum sé mikilvægt að löndin vinni náið saman. Þau séu þrjú í sama báti og þurfi að róa í sömu átt.