Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins var ákaft fagnað þegar hún ávarpaði kosningavöku framboðsins í kvöld. Vinstrið fær 9,4% samkvæmt fyrstu tölum í Reykjavík og nær þá tveimur borgarfulltrúum inn.
„Í upphafi ársins var Vinstrið ekki einu sinni til,“ sagði Sanna. „Sjáið hvar við erum núna.“
„Ég vil þakka ykkur öllum fyrir að koma í þessa vegferð og treysta og sýna Reykjavíkurborg að vinstra fólk er tilbúið til þess að vinna saman.“