Njósnarar, hárlakk, rokk og eitt mest selda lag sögunnar í villtri samsæriskenningu.Var það virkilega þýska hárrokksveitin Scorpions sem samdi hinn ódauðlega sálm „Wind of Change“ árið 1990 eða hafði bandaríska leyniþjónustan CIA fingur í spilinu?
Þessi magnaða samsæriskenning hefur gengið fjöllunum hærra og verið til umfjöllunar í vinsælum hlaðvörpum, en lagið varð eins konar þjóðsöngur fyrir fall Berlínarmúrsins og endalok kalda stríðsins. Sagt er að CIA hafi viljað nota kraftrokkið sem menningarlegt vopn til að ýta við ungu fólki á hernumdum svæðum Sovétríkjanna.
Klaus Meine, forsöngvari Scorpions, hefur þvertekið fyrir þetta og segir lagið sprottið úr eigin brjósti eftir eftirminnilega tónleika í Moskvu. Hvað sem hæft er í sögunni breytir það engu um vinsældirnar: lagið hefur selst í yfir 14 milljónum eintaka og er ein mest selda smáskífa sögunnar.