Ekki verður lengur hægt að ljúka vændiskaupamálum án ákæru ef frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra verður að lögum. Hún ætlar á morgun að kynna landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi. Meðal þess sem hún boðar er að lágmarksrefsing vegna kaupa á vændi verði fangelsi en ekki sekt.
Þetta kemur fram í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu RÚV vegna þáttar Kveiks í gærkvöld um vændi og mansal. Þorbjörg Sigríður var á fundi lögregluráðs og gat ekki veitt viðtal. Í svarinu sagði að umfjöllunin í gærkvöld kæmi ráðherra ekki á óvart. Þetta væri efni sem bregðast þyrfti við af festu og hún hefði tekið upp á fundi lögregluráðs.
Þorbjörg Sigríður kynnir á morgun landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi. Í henni verður að finna 25 tímasettar aðgerðir fyrir árin 2026 til 20230.
„Ráðherra ætlar meðal annars að leggja fram frumvarp til breytinga á hegningarlögum þannig að lágmarksrefsing vegna kaupa á vændi verði fangelsi en ekki sekt. Þar með er girt fyrir þann möguleika að vændiskaupamáli ljúki án ákæru,“ segir í svari ráðuneytisins. „Sömuleiðis er verið að skoða hvort rétt sé að gera breytingar til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar.“
Í svarinu kemur enn fremur fram að vinna við nýja aðgerðaáætlun gegn mansali sé á lokametrunum og verði kynnt á næstunni.