Breska móðirin Kate Greevy, 42 ára, pantaði nokkrar flíkur frá kínverska netsölurisanum SHEIN fyrir vinkonuferð til Ibiza.Hún ákvað að taka sig upp taka upp sendinguna, allt var í fínasta lagi þar til hún opnaði poka utan af grænum síðkjól. Hún tók upp kjólinn og úr honum duttu skítugar nærbuxur á gólfið. Í þokkabót var notað dömubindi í þeim. Í myndbandinu, sem Kate birti á TikTok, má sjá Kate taka upp kjólinn og nærbuxurnar detta á gólfið. Hún áttar sig síðan á því hvað þetta er og kúgast hressilega.
Móðir pantaði af SHEIN og kúgaðist þegar hún sá hvað datt úr pakkanum