„Ég persónulega trúi því að samræmd próf séu eitt það besta jöfnunartæki sem að til er. Af því að þar ertu með raunverulega, sameiginlega mælieiningu sem allir yfir landið fá, til að geta þá sett inn einkunnir eða umsókn inn í framhaldsskóla,“ segir Anton Sveinn McKee, formaður Ungra Miðflokksmanna, í viðtali í þættinum Átakalínur þar sem farið er yfir stöðu menntamála í ljósi niðurstaðna PISA-könnunarinnar sem komu út í vikunni.
Þurfum að kveikja inni í krökkunum vaxtarhugarfar