Útlit er fyrir að aðeins örfá prósentustig geti ráðið því hvort rauðgræna stjórnarandstöðublokkin sigrar eða hvort núverandi minnihlutastjórn hægriflokkanna heldur völdum. Skoðanakannanir hafa lengi verið vinstri vængnum í hag.
Fjögurra flokka bandalag núverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, Ulfs Kristerssons, á hægri vængnum hefur aftur á móti sótt í sig veðrið að undanförnu.
Kosningarnar gætu einnig orðið sögulegar fyrir þær sakir að Svíþjóðardemókratar gætu mögulega farið inn í ríkisstjórn í fyrsta sinn. Flokkurinn er hægri flokkur sem kennir sig við íhaldssemi og þjóðernishyggju.
Mikilvægt val fyrir Svíþjóð
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Magdalena Andersson úr Jafnaðarmannaflokknum, var meðal þeirra fyrstu til að greiða atkvæði eftir að kjörstaðir opnuðu klukkan átta að sænskum tíma í morgun.
Þetta er í höndum sænska fólksins núna. Við fáum niðurstöðurnar í kvöld. En auðvitað er þetta mikilvægt val fyrir Svíþjóð. Við eigum annaðhvort að vera með öfgahægriflokk, sem er stofnaður af nýnasistum, í ríkisstjórn í fyrsta sinn eða með mig í stafni ríkisstjórnarinnar.“
Andersson var forsætisráðherra á árunum 2021–2022 og var fyrsta konan til að gegna embættinu.