Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvarlegan mænuskaða og Katla Guðnadóttir sem lenti í dularfullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grensásdeild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heimaþjónustu. Barátta hennar hefur þegar skilað fordæmalausri ákvörðun í heilbrigðisráðuneytinu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auðveldara ef hún hefði ekki lifað slysið af.
Katla Guðnadóttir byrjaði að safna húðflúrum 18 ára gömul.
Eitt þeirra er fyrir foreldra hennar. Annað er persónan Eyrnaslapi úr Bangsímon-sögunum. Enn annað múmínálfur en svo má sjá gleymérei og fiðrildi bregða fyrir á upphandleggjunum.
Eitt húðflúranna vekur sérstaka eftirtekt: „One day at a time“ með skrautskrift.
Er það nýtt? „Nei,“ svarar Katla.
Hún segist hafa haft þetta hugarfar – „einn dag í einu“ – löngu áður en lífið hennar breyttist.
Annað húðflúr er í anda tvíburamerkisins, stjörnumerkis Þrastar Steins Magnússonar, kærasta hennar, sem kemur til hennar á hverjum degi. Á framhandleggnum er hún með tvo teninga með hjörtum í stað punkta, tákn um það hversu miklu gæfan stjórnar, en að kærleikurinn sé alltaf með í för.
„Lífið er stutt,“ segir Katla. „Mjög stutt. Og þú átt alltaf að reyna að njóta þess.“
Katla er með hæsta mænuskaða sem nokkur hefur lifað af á Íslandi. Hún er lömuð fyrir …