Ríkisstjórnin tók við gríðarlegri innviðaskuld eftir síðustu ríkisstjórn og hefur sett aukið fjármagn í vegaframkvæmdir og viðhald. Hún hefur hlotið gagnrýni fyrir kílómetragjaldið, sem síðasta ríkisstjórn guggnaði á að setja á, og hækkun þess en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist hafa skilning á því að stjórnmálamenn vilji ekki kannast við eigin áform þegar þeir eru ekki lengur við völd. Innviðafélagið gefur færi á að fara í stærri framkvæmdir sem oft þurfa að víkja fyrir öðru, auk þess sem það býður upp á innkomu einkafjárfesta í innviðauppbyggingu.
Daði Már Kristófersson: Ísland eina landið sem ekki hefur verið að nýta sér þetta