Lista yfir tilvonandi ríkisborgara nítján má finna hér neðst í fréttinni en þeirra á meðal er Safa Jemai, frumkvöðull og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í viðtali Vísis við Söfu frá árinu 2024 kom fram að hún hafi lært íslensku á fimm mánuðum eftir að hafa flust hingað, hún hafi klárað gráðu í hugbúnaðarverkfræði og í kjölfarið stofnað tvö fyrirtæki.
Það er umtalsverð fækkun miðað við síðasta ár þegar samþykkt var að veita fimmtíu manns ríkisborgararétt. Þá var mál Oscars Andreas Boganegra Florez í hámæli. Til stóð að vísa honum úr landi en á síðustu stundu var honum veittur ríkisborgararéttur.
Lagt er til að þau fái ríkisborgararétt:
1. Afsoun Sörudóttir, f. 2021 í Grikklandi.
2. Ali Abbas Sulieman, f. 1998 í Venesúela.
3. Anna Theodóra Golabiewska, f. 2024 á Íslandi.
4. Aron Patryk Rokuszewski, f. 2023 á Íslandi.
5. Baran Sörudóttir, f. 2017 í Íran.
6. Barry Lee Lennon, f. 1946 í Þýskalandi.
7. Bohdana Vasyliuk, f. 1986 í Úkraínu.
8. Daniel Fonseca Fortes, f. 1957 á Grænhöfðaeyjum.
9. Daria Testoedova, f. 1999 í Rússlandi.
10. Kamal Nasser Nasser, f. 2014 í Sýrlandi.
11. Maison Nasser De Nasser, f. 1983 í Venesúela.
12. Nadia Sörudóttir, f. 2014 í Íran.
13. Njúsha Sörudóttir, f. 2019 í Grikklandi.
14. Safa Jemai, f. 1994 í Túnis.
15. Saif Nasser Nasser, f. 2020 í Sýrlandi.
16. Sayed Wahab Hashimi, f. 2001 í Afganistan.
17. Wesley Randall Farnsworth, f. 1987 í Bandaríkjunum.
18. Yozef Nasser Nasser, f. 2020 í Sýrlandi.
19. Zakhar Vasyliuk, f. 2012 í Úkraínu.