Vilja nota bílinn minna en kerfið heldur þeim við stýrið
Um þriðjungur þeirra sem ekur til vinnu vill frekar ferðast með öðrum hætti. Rannsóknir Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar benda til þess að ferðatími, leiðakerfi, bílastæði og dagleg erindi geri bílinn enn að raunhæfasta kostinum fyrir stóran hóp fólks.
Einkabíllinn hefur enn yfirburðastöðu í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að stór hópur þeirra sem ekur til vinnu segist vilja ferðast með öðrum hætti. Það er ein meginniðurstaða tveggja ára rannsóknarverkefnis Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um ferðavenjur íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Niðurstöðurnar benda til þess að skortur á vilja til breytinga skýri ekki einn hvers vegna fólk heldur áfram að nota bíl, heldur skipti uppbygging samgöngukerfisins og borgarinnar miklu máli.
Í lokasamantekt verkefnisins segir að samgöngukerfið sé enn „að stórum hluta sniðið að þörfum einkabílsins“ og veiti honum „verulegt samkeppnisforskot“. Jafnvel þegar fólk lýsi vilja til að breyta ferðavenjum sínum séu aðrir ferðamátar oft ekki nægilega hagkvæmir, þægilegir eða raunhæfir í daglegu lífi.
Sólveig Lind Ásgeirsdóttir þekkir vandann við að fara gangandi eða hjólandi um svæði þar sem bílar eru fyrirferðarmiklir. Hún sækir jóga í Skeifunni og er nýstigin á reiðhjólið sitt eftir tíma þegar blaðamaður hittir hana.