Fjarskiptastofa óskaði eftir því að símafyrirtæki lokuðu á alla síma sem ekki geta hringt í Neyðarlínuna fyrir 15. nóvember. Þetta staðfesti innviðaráðherra í svari við fyrirspurn Ingveldar Önnu Sigurðardóttur á Alþingi. Sú vinna tefst en forstjóri Fjarskiptastofu segir ólíðandi að einhverjir nái ekki í Neyðarlínuna í neyðartilvikum. Fjarskiptastofu skorti lagalegar heimildir til þess að krefjast lokana.
„Við sendum út þessi tilmæli nýlega. Þetta er tæknilega séð nokkuð flókið mál en félögin eru að greina stöðu þessara tækja sem eru ósamhæfð og við erum að vinna með þeim að því. Það mun dragast eitthvað fram yfir þessa dagsetningu sem er 15. nóvember en þetta er stefnan,“ segir Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu. Ekki er hægt að hringja í neyðarnúmerið 112 úr 3-4000 símum, eða 0,5% allra síma í notkun á Íslandi.
Unnið með símafyrirtækjunum sem þó eru uggandi
Ólafur Magnússon, tæknistjóri NOVA, sagði í samtali við fréttastofu að fyrirtækið upplýsti stöðugt notendur sína um stöðu síma þeirra en lokaði þeim ekki fyrir 15. nóvember. Hann sagði virkt samtal í gangi við Fjarskiptastofu en alls enga ákvörðun hafa verið tekna. Allir eigendur ónothæfra síma hafa fengið tilkynningar um stöðu þeirra frá því að lokunarferlið hófst.
Í skýrslu Fjarskiptastofu sem var unnin fyrir innviðaráðuneytið um lokun 2G og 3G kerfanna kemur að stofnunin hafi ekki hafa lagalegar heimildir til þess að krefjast slíkra lokana og sé þetta gert í samstarfi við símafyrirtækin. Allir sem eiga slík tæki eigi að vera búnir að fá fjölmargar tilkynningar frá því að ferlið hófst um að tæki þeirra séu ekki samhæfð til að hringja neyðarsímtöl. Aðspurður hvort fólk velji að vera áfram með ósamhæfða síma segir hann ýmis sjónarmið koma til greina.
„Það eru örugglega ýmis konar sjónarmið sem liggja því til grundvallar ef fólk er með ósamhæfða síma. Það getur verið að fólk hafi valið það, það getur verið að fólk sé ekki í stakk búið til að bregðast við þessu eða hvað annað sem verða vill. Við erum hins vegar þeirrar skoðunar að við það verður ekki búið að það séu ósamhæfð símtæki sem ekki geti hringt í neyðarnúmerið 112.“