Á höfuðborgarsvæðinu nær vindur sér varla á strik í dag og hiti verður um 10 til 15 stig.
Hins vegar má búast við hvössum vindstrengjum við suðausturströndina sem gætu myndað varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Lægð suður af landinu veldur stífri norðaustanátt í dag, víða 8 til 15 metrar á sekúndu. Rigning og svalt veður fylgir norðaustanáttinni á austanverðu landinu. Vestanlands verður að mestu þurrt og fremur milt. Einhverjir dropar gætu þó fallið á Suðurlandsundirlendinu.
Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
Á Akureyri má búast við dálítilli rigningu og 7 til 11 stiga hita.
Litlar breytingar eiga að verða á morgun og á föstudag en þó á að draga úr vindi á Suðausturlandi.