Verkfall flugvirkja gæti kostað Icelandair hundruð milljóna króna á dag í tekjutap og bætur til farþega, samkvæmt greiningu AKKUR. Flugvirkjar Icelandair hafa boðað ótímabundið verkfall sem hefjast á 23. september, náist ekki samningar.
Um 15 þúsund farþegar ferðast með Icelandair á hverjum degi um þetta leyti í september, í um 110 flugferðum. Röskun á flugi gæti því haft áhrif á ferðaáætlanir þúsunda ferðamanna og tekjur fyrirtækja víða um land.
Milljarðatjón ef verkfall dregst á langinn
Samkvæmt greiningu AKKURs gæti þriggja daga verkfall, þar sem um helmingur flugáætlana félagsins félli niður, kostað Icelandair um 1,1 milljarð króna.
Vikuverkfall með helming flugferða felldan niður gæti kostað um 2,7 milljarða króna. Verði algjör stöðvun á flugrekstri í tvær vikur gæti kostnaðurinn numið allt að 10,8 milljörðum króna.
Verð á flugvélaeldsneyti hefur hækkað á ný og er nú um 180 dollarar, eða rúmar 22 þúsund krónur, á tunnu. Greiningaraðilar telja að langvarandi hækkun eldsneytisverðs geti haft meiri áhrif á afkomu Icelandair til lengri tíma en boðað verkfall flugvirkja.
Farþegar eigi að fylgjast með upplýsingum frá félaginu
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir farþega sem eiga bókaðar ferðir eiga að fylgjast með upplýsingum frá félaginu. Icelandair muni hafa samband við þá farþega sem verði fyrir áhrifum.
„Öll flug eru enn á áætlun, ég legg áherslu á það,“ segir Bogi. „Við vonumst að sjálfsögðu til að það verði ekki af þessu en við erum búin að gefa það út til okkar farþega sem eru að ferðast 23. og 24. september að þeim bjóðist að færa til flugin sín.“
Ef til röskunar kemur ber Icelandair að bjóða farþegum annað flug eða endurgreiðslu. Í mörgum tilvikum geta farþegar einnig átt rétt á skaðabótum samkvæmt evrópskum farþegareglum, þar sem verkfallið varðar starfsfólk flugfélagsins sjálfs.
Bogi segir félagið reyna að koma farþegum á áfangastað þegar flug raskast. Takist það ekki eigi farþegar rétt á endurgreiðslu.
Um mögulegar skaðabætur segir hann að hvert tilvik verði metið fyrir sig og að Icelandair muni fylgja gildandi reglum.