Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ segir að deilurnar innan samtakanna undanfarið eigi rætur sínar að rekja til ágreinings milli stjórnar og fyrrverandi forstjóra um stefnu SÁÁ.
„Þetta snýst um hlutverk SÁÁ í samfélaginu og víðfeðmi starfseminnar. Þetta snýst ekki um heilbrigðisþjónustuna. [...] SÁÁ snýst um mikið meira.“
Hún hafnar því að stjórn hafi skipt sér af heilbrigðisstarfi SÁÁ, eins og fráfarandi stjórnendur hafa haldið fram. Henni finnst félagasamtökin enn fremur ekki stangast á við heilbrigðisstarfið.
Formaður SÁÁ ræddi við Kristján Kristjánsson í Kastljósi í kvöld.
Anna Hildur segir að atburðarásin sem fylgdi því að forstjóri sagði upp störfum sé mjög alvarleg. Lykilstarfsmenn, meðal annars Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga, sögðu upp störfum.
„Okkur finnst þetta miður og höfum reynt allt okkar til að ná sáttum við hana. [...] Við urðum að ráða nýjan mann, annars hefði starfsemin fallið niður.“
Anna Hildur segir að eftir að Valgerður sagði upp hafi embætti landlæknis boðað stjórn á erfiðan fund.
„Við fengum skýr skilaboð frá þeim sem við þurftum að bregðast við mjög hratt. Að ef að við myndum ekki ráða nýjan eða fá framkvæmdastjóra lækninga til að taka ábyrgð á sjúkraskrá og sjúkrahúsinu að þá myndi starfsemin falla niður.“
Anna Hildur segir stöðuna á sjúkrahúsinu Vogi ekki góða sem stendur. „Við erum alla daga í krísustjórnun núna.“
SÁÁ hafa nú ráðið nýjan forstjóra og nýjan framkvæmdastjóra lækninga.