Bíll varð alelda við Fífuhvammsveg í Kópavogi í kvöld. Vísir greinir frá.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eldinn skömmu fyrir klukkan hálf ellefu og var komið á vettvang um hálf ellefu. Einn dælubíll var sendur á vettvang.
„Við fáum tilkynningu um bíl og hann er alelda,“ segir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu.
Samkvæmt Lárusi barst eldurinn í annan bíl sem lagður var við hliðina á bílnum sem varð alelda.
Náðst hefur tökum á eldinum en ekki liggur fyrir hvað olli honum. Lárus segir að um lítið atvik sé að ræða og að íbúar þurfi ekki að hafa áhyggjur af reyk.