Tillögur um stórfjölgun jöfnunarsæta myndu jafna atkvæðavægi milli kjördæma en hafa um leið mikil áhrif á þingmannafjölda þeirra. Hafsteinn Birgir Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, segir breytingarnar róttækar, sérstaklega fyrir Norðausturkjördæmi þar sem þingmönnum myndi fækka úr tíu í sjö.
„Þetta er auðvitað ákveðið grundvallarsjónarmið,“ segir Hafsteinn um markmiðið að jafna vægi atkvæða. Hann bendir þó á að togstreita sé milli jafns atkvæðavægis og þess að tryggja landsbyggðinni nálægð við valdið.
Hann segir fjölgun jöfnunarsæta einnig draga úr líkum á því að úthlutun þingmanna milli flokka verði frábrugðin því sem hún yrði ef landið væri eitt kjördæmi. „Með því að fjölga jöfnunarþingmönnum svona mikið þá dregur verulega úr líkum á því.“