Andri Snær Magnason hlaut í dag Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti, á degi íslenskrar náttúru. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar. Þetta er í sautjánda sinn sem hún er afhent.
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að Andri Snær hafi um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélag.
Meðal annars hafi hann beint sjónum að verndun íslenskrar náttúru, jöklum landsins, súrnun sjávar og þeim grundvallarbreytingum sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér.
Andri Snær var einnig sæmdur heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar 17. júní á þessu ári fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
Miðlar flókinna niðurstaðna á aðgengilegan hátt
Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að Andri Snær hafi lengi miðlað niðurstöðum flókinna umhverfis- og loftslagsmála á aðgengilegan hátt, meðal annars með bókum, kvikmyndum, fyrirlestrum og virkri þátttöku í samfélagsumræðu.
Hann átti einnig þátt í að vekja heimsathygli á örlögum Okjökuls. Ok missti stöðu sína sem jökull árið 2014 og árið 2019 var komið fyrir minningarskildi með texta Andra Snæs, Bréf til framtíðarinnar, á fjallinu til að minnast jökulsins og vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga.
Á síðustu árum hefur Andri Snær lagt sérstaka áherslu á loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á jökla og hafið. Í bókinni Um tímann og vatnið, sem kom út 2019, fjallar hann meðal annars um bráðnun jökla, hækkun sjávarborðs og súrnun sjávar og setur breytingarnar í samhengi við líf fólks og ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum.
Bókin hefur náð til lesenda víða um heim og er nú einnig orðin að samnefndri heimildarmynd á vegum National Geographic.
Nýlega kom út heimildarmynd á vegum National Geographic eftir Söru Dosa, Um tímann og vatnið, sem byggð er á samnefndri bók Andra Snæs.
Ástrós Signýjardóttir ræddi við Andra Snæ í Speglinum í dag.