Atvinnuvegaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að sekta kúabónda fyrir brot gegn lögum um velferð dýra og brot gegn reglugerð um velferð nautgripa. Fólust brotin í því að bóndinn batt naut á bása en það mun vera óheimilt nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hafði stofnunin áður gert athugasemd við að bóndinn hefði bundið naut á bás.
Kúabóndi verulega ósáttur við Matvælastofnun - Sektaður fyrir það sem hann segir aldagamla venju