Háværar sprengingar hafa kveðið við í úkraínsku höfuðborginni Kyiv eftir að hermálayfirvöld vöruðu við yfirvofandi eldflaugaárás Rússlandshers.
Yfirvöld hvöttu almenning til að leita skjóls hið snarasta. Fréttaritari AFP í borginni kveðst sjálfur hafa heyrt vel á annan tug sprenginga.
Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir íbúðabyggingu og skrifstofuhúsnæði hafa skemmst í Dniprovsky-hverfinu þegar brak féll þar til jarðar. Úkraínsk yfirvöld greina jafnframt frá árásum á hafnarborgina Odessu þar sem nokkrar hæðir nítján hæða fjölbýlishúss gereyðilögðust.