Olíumálverkið Liljur eða Íris, eftir franska impressjónistann Claude Monet, seldist fyrir 50 milljónir evra í París í Frakklandi í gær. Verkið er þar með dýrasta listaverk sem selt hefur verið á uppboði í landinu. Verkið er 1,6 metrar á hæð og 1,8 metrar á breidd og hefur aldrei verið sýnt opinberlega.
Monet málaði verkið skömmu áður en hann lést, 5. desember 1926, eða fyrir tæpum hundrað árum. Verkið var í eigu Schlumberger-fjölskyldunnar og hefur hangið uppi á höfðingjasetri fjölskyldunnar þar til nú.
Á vefsíðu uppboðshaldara má lesa meira um Liljur og uppruna þess.