Halla Tómasdóttir forseti Íslands átti einkafund með Leó XIV páfa í Vatíkaninu í gær. Að fundinum loknum gekk forsetinn til fundar við Pietro Parolin kardínála, æðsta embættismann páfastóls.
Í tilkynningu frá Embætti forseta Íslands segir að á fundunum hafi meðal annars verið rætt um þróun mála á alþjóðavettvangi, aukinn fjölda alvarlegra stríðsátaka víða um heim og nauðsyn þess að stemma stigu við þeim með samtali um frið.
„Einstök og ógleymanleg stund,“ skrifar Halla við myndir sem hún birti frá heimsókninni á Facebook-síðu sinni í dag.