Andris Sprūds, fráfarandi varnarmálaráðherra Lettlands, tilkynnti um afsögn sína á blaðamannafundi í gærkvöld. Hann segir að með afsögn sinni vilji hann koma í veg fyrir að lettneski herinn verði dreginn inn í pólitískar deilur. Lettneska ríkisútvarpið LSM greinir frá.
Undanfarið hafa nokkrir drónar hrapað til jarðar í aðskildum atvikum í Lettlandi og herinn var gagnrýndur fyrir að bregðast ekki við nægilega fljótt og skjóta þá niður. Forsætisráðherra Lettlands Evika Siliņa fór fram á afsögn Sprūds. Hún sagði að hann hefði misst traust flokks hennar og þjóðarinnar vegna málsins.
Afsögn Sprūds gæti haft áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og Framfaraflokkur Sprūds ætlar að greina frá því í dag hvort flokkurinn ætli að vera áfram í ríkisstjórn eða ekki. Hann hefur verið varnarmálaráðherra síðan 2023.
Þrír flokkar mynda ríkisstjórn Lettlands: flokkur forsætisráðherrans Ný samstaða, Framfaraflokkur varnarmálaráðherrans og flokkur grænna og bænda.
LSM greinir frá því að Sprūds hafi verið gagnrýndur áður vegna drónamála. Úkraínskur dróni hrapaði til jarðar í Krāslava-héraði 25. mars sem beindist að rússneskum innviðum en ekki Lettlandi. Þá hrapaði rússneskur Shahed-dróni í sveitarfélaginu Gaigalava 7. september 2023.