„Aðild að ESB myndi þýða að Ísland lyti eftirliti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hvort landið gæti tilnefnt einn af hinum mörgu framkvæmdastjórum er engan veginn víst. Mikilvægt er að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er orðin æ pólitískari stofnun sem hefur fjarlægst hið sígilda hlutverk sitt að vera hlutlaus verndari sáttmálanna.“
Þetta segir Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag segir hann meðal annars að ekki megi gefa sig þeirri blekkingu á vald að ESB bjóði sjálfkrafa, á öllum sviðum, upp á áreiðanlega umgjörð sem fylgir lögum stranglega.
Lesa má nánar um málið ða bls.16 í Morgunblaðinu í dag