Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, segir að umsókn um inngöngu í Evrópusambandið sé einn þeirra möguleika sem ríkisstjórnin gæti skoðað til að efla sambandið við Evrópu.
Hann hefur sagt að stöðnun og sundrungu í Bretlandi megi rekja til Brexit og því ætli hann að skoða alla kosti í stöðunni.
Þegar Burnham bauð sig fram í aukakosningum í Makerfield í sumar sagðist hann ekki ætla að leggja til að Bretland gangi aftur í ESB.
Bretar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2016 að ganga úr Evrópusambandinu. Úrsögnin tók formlega gildi í árslok 2020.