Landhelgisgæslan segir að áhöfn Banderos, skips Paul Watson-samtakanna, hafi ekki sótt um leyfi til að sigla inn í lögsögu Íslands fyrir helgi, heldur leyfi til að leggjast að bryggju í Faxaflóahöfn á mánudag.
Skipverjar sögðu í viðtali við fréttastofu í gær að þeir hefðu óskað eftir leyfi til að sigla inn í 12 mílna lögsögu Íslands en þeirri beiðni hafi verið hafnað. Þá hafi þeir óskað eftir frekari útskýringum en ekkert svar fengið.
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þetta ekki rétt, heldur hafi beiðni áhafnarinnar snúið að leyfi til að koma til Faxaflóahafna. Landhelgisgæslan hafi hafnað beiðninni og vísað til áhættumats ríkislögreglustjóra. Áhöfnin óskaði þá eftir frekari rökstuðningi og var Gæslan að vinna að svari þegar áhöfn Bandero veittist að hvalveiðiskipi Hvals hf.