Ökumaður mótorhjóls slasaðist þegar bíll og mótorhjól rákust saman á Þjóðvegi 1, sunnanmegin við Vaðlaheiðargöngin, Akureyrarmegin á fjórða tímanum í dag. Hann er ekki í lífshættu.
Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kölluð til en hafa nú lokið aðgerðum á vettvangi. Búið er að opna fyrir umferð á ný.
Fréttin hefur verið uppfærð.