Í fyrra slösuðust 112 börn undir 14 ára aldri í umferðinni. Þar af slösuðust 14 börn alvarlega og eitt lést. 41 var á reið- eða rafhlaupahjóli, 14 voru gangandi, 46 voru farþegar í bíl og hin ferðuðust með öðrum hætti. Ágúst Mogensen, forvarnasérfræðingur hjá Verði, segir að áhersla eigi að vera á að finna öruggustu leiðina í skólann og bera endurskinsmerki í myrkrinu. Foreldrar eigi að fara vel yfir umferðarreglurnar með börnum sínum.
Ökumenn eigi að virða hraðatakmarkanir og fara mjög varlega við skóla, forðast að bakka þar og hleypa börnum helst alltaf út á gangstétt. Hafa verði í huga að lítið heyrist í rafbílum.
Fréttastofa fylgdi Unni Signýju Hugadóttur, sem er alveg að verða sex ára, í skólann fyrsta skóladaginn. Unnur gerði allt eftir bókinni og kann umferðarreglurnar upp á tíu.
Umferðarreglurnar eiga að vera hluti af skólaundirbúningnum