Haldinn var aukafundur í borgarráði Reykjavíkurborgar í morgun. Í frétt Vísis segir að skipulagsbreytingar tengist meðal annars svæðismiðstöðum borgarinnar en þær eru fjórar. Eins segir að uppsagnir tuga starfsmanna hjá bæði velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar hafi verið teknar fyrir á fundinum.
Í frétt mbl.is segir að á sjötta tug starfsmanna missi vinnuna í breytingunum.
Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs staðfestir að aukafundur hafi verið haldinn og segir Hildur Björnsdóttir í skriflegu svari til fréttastofu að unnið sé að umfangsmiklum stjórnskipulagsbreytingum sem munu hafa áhrif á störf hjá borginni.
Frekar verði greint frá því eftir að starfsfólk borgarinnar hefur verið upplýst.
„Þetta er erfiður dagur, ferlinu er ekki lokið og við leggjum áherslu á að ræða fyrst við það starfsfólk sem breytingarnar snerta. Við munum senda út tilkynningu síðar í dag þegar við höfum upplýst starfsfólk okkar,“ segir Hildur.