Utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings hefur staðfest William Long sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Hann er væntanlegur til landsins fljótlega en enginn sendiherra gagnvart Íslandi hefur verið starfandi frá í janúar í fyrra.
Carrin F. Patman, sem Joe Biden tilnefndi sendiherra Bandaríkjanna hérlendis, lét af störfum eins og aðrir pólitískt skipaðir sendiherrar í kjölfar embættistöku Donalds Trumps í janúar 2025. Trump tilefndi Long svo sendiherraefni sitt hérlendis í septemberbyrjun í fyrra. Long hafði reyndar sjálfur greint frá því að honum hefði verið boðin staðan nokkru áður, sama dag og honum var vikið úr starfi ríkisskattstjóra eftir einungis tvo mánuði í því starfi.
Rússland, Kína og varnarmál í forgrunni
Long mætti fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildarinnar í febrúar til að svara spurningum þingmanna og lýsti Íslandi sem lykilríki í nýrri varnarmála- og öryggisstefnu Bandaríkjanna á Norðurslóðum. Bæði Long sjálfur og þingmenn nefndarinnar lögðu sérstaka áherslu á vaxandi umsvif Rússlands og Kína á norðurslóðum og mikilvægi Keflavíkurflugvallar og Íslands fyrir eftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi.
Í skriflegum vitnisburði sínum lýsti Long samstarfi Rússlands og Kína sem sífellt nánara og vísaði til sambandsins sem „vináttu án takmarkana“. Hann sagði Rússa hafa endurbyggt herstöðvar frá tímum kalda stríðsins og aukið bæði umfang og tíðni heræfinga á norðurslóðum. Um leið sagði hann Kína sækjast eftir auknum áhrifum með stefnunni um „silkileið norðurslóða“, bæði með fjárfestingum og aukinni hernaðarlegri samvinnu við Rússa. Long sagði að ef hann yrði staðfestur í embætti myndi hann vinna að aukinni viðveru NATO-ríkja á Norðurslóðum og styðja bandarísk fyrirtæki og sameiginleg verkefni til að vinna gegn efnahagslegum áhrifum Kína.
Long fór einnig ítarlega yfir mikilvægi Íslands fyrir bandaríska öryggishagsmuni þrátt fyrir að landið væri herlaust. Hann nefndi sérstaklega móttöku bandarískra P-8A kafbátaleitarvéla, komur kafbáta bandalagsríkja og þátttöku Íslands í loftrýmisgæslu NATO. Þá sagði hann að Bandaríkin myndu leggja áherslu á að tryggja innviði fyrir loft- og sjóeftirlit, aðstöðu fyrir flota- og loftherafla og örugg fjarskiptakerfi. Sjaldan hafa fulltrúar bandarískra stjórnvalda talað jafn skýrt um fjarskiptaöryggi og varnartengda innviði á Íslandi sem hluta af norðurslóðastefnu Bandaríkjanna.
Orkuframleiðsla fyrir gagnaver og gervigreind
Orkuframleiðsla var Long einnig hugleikin. Í opnunarávarpi sínu sagði hann að Ísland væri leiðandi á sviði stöðugrar og ódýrrar orku, einkum jarðhita og vatnsafls, og að sú þekking skapaði veruleg tækifæri fyrir samstarf ríkjanna þar sem Bandaríkin vildu styrkja ráðandi stöðu sína á orkumarkaði og knýja áfram næstu kynslóð gervigreindar og gagnavera.
Umdeildur og litríkur
Billy Long er ekki óumdeildur. Hann er fæddur og upp alinn í Springfield í Missouri og lauk uppboðshaldaranámi við Missouri Auction School í Kansas City. Hann starfaði lengst af sem uppboðshaldari og fasteignasali, vakti athygli fyrir líflega framkomu en hafði aldrei gegnt pólitísku embætti þegar hann bauð sig fram til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings 2010. Hann náði kjöri og varð einarður stuðningsmaður Donalds Trumps þegar hann var kjörinn forseti 2016. Eitt af baráttumálum Longs var að leggja niður skattstofuna og því vakti athygli þegar hann var gerður að ríkisskattstjóra 2025. Tveimur mánuðum síðar var honum vikið úr embætti en boðið sendiherrastaða á Íslandi.