Tyrkneska lögreglan beitti táragasi gegn fólki sem kom saman í tilefni baráttudags verkalýðsins þegar það reyndi að komast inn á afgirt torg í Istanbúl í morgun.
Tveir hópar sem komu saman í tilefni dagsins höfðu gefið það út að þeir ætluðu að ganga að torginu, sem hefur oft verið vettvangur mótmæla af hálfu stjórnarandstöðunnar. Torgið hafði verið girt af í nótt, af öryggisástæðum að sögn stjórnvalda. Lögreglan beitti táragasi á hópana.
Mannréttindasamtökin CHD segja að hátt í 370 manns hafi verið handteknir. Meðal þeirra var leiðtogi verkamannaflokks Tyrklands. Hann sagði við sjónvarpsstöð stjórnarandstæðinga að þeir sem væru við völd gætu talað allt árið, og því væri sanngjarnt að verkafólk mætti tala um þá erfiðleika sem það glímdi við einu sinni á ári. Starfsmaður verkalýðsfélags, sem líka var handtekinn, sagði að ekki mætti banna verkafólki aðgang að Taksim-torginu á meðan allir aðrir mættu nota það fyrir opinberar athafnir og hátíðir.
Verkalýðsdagurinn 1. maí hefur lengi verið átakadagur í Tyrklandi og fjöldi lögreglumanna hefur verið á götunum. Í fyrra voru mótmæli færð í annan borgarhluta en það kom ekki í veg fyrir að um 400 manns voru handteknir. Tyrknesk yfirvöld gáfu fyrr í vikunni út 62 handtökuskipanir. 46 þeirra voru taldir líklegir til að gera árásir. Í þeim hópi voru blaðamenn, verkalýðsleiðtogar og framámenn í stjórnarandstöðunni.