Nefnd um eftirlit með lögreglu telur lögreglu hafa farið fram úr meðalhófi þegar einstaklingur úlnliðsbrotnaði við handtöku á Akureyri síðasta sumar. Málið er á borði héraðssaksóknara.
Þetta kemur fram í ákvörðun nefndarinnar sem kom saman 29. maí. Þar segir að í ágúst 2025 hafi kvartandi mætt á ökutæki sínu til að heimsækja vin sinn á Akureyri. Þangað hafi lögregla og síðar sérsveit komið.
Lögreglan lýsir því þannig í úrskurðinum að lögreglumaður hafi gengið rólega að kvartanda og spurt hvort ekki væru allt með felldu. Hann hafi þá svarað hvasst: „Jú, þangað til þú komst.“
Þegar kvartandi ætlaði að opna dyr á stigagangi íbúðahúsnæðis með lykli segir hann sérsveitarmann hafa ætlað að handtaka sig.
Kvartandi mótmælti því og spurði um ástæður handtökunnar en sagðist ekki hafa fengið svör frá lögreglu. Einstaklingurinn var fluttur á lögreglustöð en þegar þangað var komið var honum sleppt úr haldi, hann beðinn afsökunar og honum ekið aftur að ökutæki sínu við heimili vinar síns. Í kjölfarið fann hann fyrir miklum verk í handlegg og leitaði á sjúkrahús þar sem í ljós kom að úlnliður hans var brotinn.
Í ákvörðun nefndarinnar segir að gögn málsins beri með sér að kvartandi hafi ekki gerst uppvís að neinu broti að öðru leyti en því að hann neitaði að segja til nafns.
Þá telji nefndin að starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi eystra hafi farið fram úr meðalhófi og þeim heimildum sem lögreglu eru gefnar með lögum um valdbeitingu. Í ljósi þess beri nefndinni skylda til að vísa málinu til meðferðar héraðssaksóknara.