Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“ - DV

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“ - DV

Úkraínskur hermaður hakkaði sig nýlega inn á fund hjá rússneska hernum. Fundurinn fór meðal annars fram í gegnum fjarfundabúnað. Um fund með háskólanemum var að ræða þar sem fulltrúar hersins voru að reyna að fá þá til að ganga til liðs við herinn.

The Telegraph segir að skyndilega hafi úkraínskur hermaður birst á skjánum og hafi hótað að drepa alla háskólanemana ef þeir gengu til liðs við rússneska herinn.

Upptaka af þessu hefur verið á miklu flugi á samfélagsmiðlum.

„Ég er hermaður, bara ekki rússneskur. Ég er Úkraínumaður. Ég vil bara segja við ykkur: Guð bannar ykkur að koma hingað og því á ég engan annan kost en að drepa ykkur, hvern og einn, sem skrifar undir samning við herinn,“ sagði hann og bætti við að Úkraínumenn hafi tekið myndir af andlitum allra fundargestanna.

#hakkaði #hermaður #inn #sig #úkraínskur


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/2/ukrainskur-hermadur-hakkadi-sig-inn-fund-hja-russneska-hernum-eg-drep-ykkur-alla/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260