Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að málið sé til rannsóknar og farið hafi verið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur að lokinni yfirheyrslu. Héraðsdómur Reykjaness féllst á þá beiðni.
Þriðja einstaklingnum hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. „Að mati lögreglu eru brýnir rannsóknarhagsmunir fyrir hendi og er rannsókn lögreglu á frumstigi,“ segir í tilkynningu. Lögreglan greindi frá því í gær að fórnarlambið væri ekki talið í lífshættu.
Tilkynning hafi borist um málið klukkan 02.40 og þegar lögregla kom á vettvang hafi fjöldi manns verið samankominn utandyra og fljótlega óskað eftir frekari aðstoð viðbragðsaðila þar sem tilkynnt var um hnífaburð.