Tveir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans til skoðunar eftir árekstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík síðdegis í dag. Ekki liggur fyrir hvort fólkið hafi slasast.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var það flutt til nánari skoðunar. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang á Kringlumýrarbraut við Fossvog.
Áreksturinn hafi verið aftanákeyrsla en ekki liggur fyrir hve margir bílar voru í árekstrinum. Samkvæmt mbl.is voru þeir þrír en slökkviliðið gat ekki staðfest það að svo stöddu.