Donald Trump segir ekki útilokað að Bandaríkin fari fram á að ríki Evrópusambandsins losi um varabirgðir dísils til að lækka olíuverð.
Ríki geyma varabirgðir af eldsneyti sem grípa má til komi upp neyðarástand. „Við gætum gert þetta, þeir eiga yfrið nóg af dísli,“ sagði Trump við blaðamenn á kosningafundi í Texas.
Þessi yfirlýsing forsetans kemur í kjölfar kröfu fjármálaráðherrans Scott Bessent um að Evrópuríki losi um varabirgðir umsvifalaust. Trump sagðist á miðvikudag enn þá vera að íhuga útflutningsbann á dísil, sem gæti leitt af sér frekari verðhækkun í Evrópu.