Donald Trump forseti Bandaríkjanna gagnrýnir Ísraelsmenn fyrir hvernig þeir taka á Hezbollah-samtökunum í Líbanon og leggur til að Sýrlendingar taki við því verkefni. Þá vísar hann því á bug að nýjum samningi fylgi fjárfestingar í Íran og segir mikilvægast að Íranar eignist aldrei kjarnorkuvopn.
Trump tjáði sig um samninginn við Íran fyrir fund sinn með Sheikh Tamim bin Hamad al Thani emírnum í Katar sem er meðal gesta á G7 fundinum í Frakklandi. Þar sagði hann þann fréttaflutning fáránlegan að samningurinn myndi skuldbinda Bandaríkjamenn til að fjárfesta í Íran. „Við erum ekki að setja neina peninga þangað og erum ekki skyldugir til þess. Við megum það ef við viljum en við erum ekki að fjárfesta þar,“ sagði hann.
Íranskir fjölmiðlar höfðu greint frá því að í klásúlu í samningnum kæmi fram að Bandaríkin þyrftu að kynna áætlun um endurbyggingu fyrir landið upp á 300 milljarða bandaríkjadala.
Mikilvægast að engin kjarnorkuvopn séu í Íran
Trump sagði jafnframt að það eina sem skipti hann máli sé að Íranar ráði aldrei yfir kjarnorkuvopnum. Það sé skýrt í samningnum. „Þess vegna fór ég í þetta stríð og þess vegna ákvað ég að skrifa undir samninginn.“ Hann neitar því að tilgangur stríðsins hafi verið að breyta um stjórn á landinu - það hafi aldrei gengið. Þó hafði hann hvatt Írana til að taka stjórnina í upphafi stríðsins.
Trump gagnrýndi einnig Ísraelsmenn fyrir hvernig þeir höndluðu Hezbollah-samtökin í Líbanon, þó að hann teldi stríðið í Líbanon smámál miðað við stríðið í Íran. „Það þarf ekki að skjóta niður íbúðarhús í hvert sinn sem verið er að leita að einhverjum, því íbúðarhúsin eru mörg og það eru ekki eingöngu Hezbollah-liðar í þeim. Og ég legg til við Ísrael að láta Sýrland sjá um Hezbollah. Ég held í fullri hreinskilni að þeir geri það betur.“ Hann gagnrýndi líka að Ísraelsmenn hefðu gert árásir á Líbanon tveimur tímum áður en samkomulagið var undirritað.
Donald Trump staðfesti jafnframt að hann myndi eiga fund með Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu síðar í dag. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að Rússar ættu að semja.