Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðsrekstrinum gegn Íran lokið eftir að sextíu daga frestur til að fá samþykki þingsins rann út.
„Engin vopnaviðskipti hafa verið milli bandarískra og íranskra hermanna síðan 7. apríl 2026. Hernaðaraðgerðum sem hófust 28. febrúar 2026 er lokið,“ segir í bréfi forsetans til forseta beggja þingdeilda, þeirra Mike Johnson og Chuck Grassley.
Í lögum sem sett voru 1973 eftir Víetnamsstríðið ber Bandaríkjaforseta að fá samþykki þingsins fyrir áframhaldandi stríðsrekstri sextíu dögum frá því tilkynning um hann barst og slíkur stríðsrekstur sé aðeins heimill ef ógn steðjar að landinu.
Bandarískt herlið er þó enn í viðbragðsstöðu. Í lögum sem sett voru 1973 eftir Víetnamsstríðið ber Bandaríkjaforseta að fá samþykki þingsins fyrir áframhaldandi stríðsrekstri sextíu dögum frá því tilkynning um hann barst og slíkur stríðsrekstur sé aðeins heimill ef ógn steðjar að landinu.
Trump kveðst hins vegar óánægður með tilboð Írana um friðarviðræður, sem pakistanskir milligöngumenn báru til hans. Olíuverð lækkaði ögn þegar tilkynning barst um boð Írana.
„Ég get engan veginn fallist á tilboð þeirra,“ sagði Trump og kvaðst álíta gríðarlega upplausn ríkja innan klerkastjórnarinnar. Innihald tilboðsins hefur ekki verið gert heyrinkunnugt enn þá. Írönsk stjórnvöld segjast opin fyrir viðræðum en ítreka að af þeim verði ekki undir þrýstingi frá Bandaríkjunum.