Leiðtogar G7-ríkjanna eru einhuga í stuðningi við Úkraínu, samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu. Einnig er kallað eftir tafarlausu vopnahléi í Líbanon og forseti Bandaríkjanna er mærður fyrir viljayfirlýsingu um frið við Íran.
„Ég er stjórinn,“ sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og sló á létta strengi þegar hann mætti til fundar í morgun. Hann lét hina leiðtogana bíða aðeins eftir sér og mætti nærri klukkustund of seint.
En miðað við sameiginlega yfirlýsingu sem var birt í dag er einhugur meðal leiðtoganna um óhagganlegan stuðning við Úkraínu og að auka þrýsting á rússnesk stjórnvöld - meðal annars með refsiaðgerðum.
Þetta telst til tíðinda þar sem Trump hefur ekki alltaf gengið í takt við hina leiðtogana hvað varðar Úkraínu.
Þá er kallað eftir tafarlausu vopnahléi í Líbanon. Við fundarhöld gærdagsins gagnrýndi Trump hernað Ísraela þar og sagði ekki nauðsynlegt að sprengja íbúðarhús í hvert skipti sem leitað sé að Hezbolla-liðum.
„Við fögnum tilkynningu um samning milli Bandaríkjanna og Írans, sem var tryggður undir sterkri forystu Trump forseta,“ segir einnig í yfirlýsingunni. Nú skömmu fyrir hádegið tjáði Trump sig við fjölmiðla um viðræðurnar við Íran.
„Þetta er ekki endanlegt, þetta ef viljayfirlýsing. Ef mér líkar ekki eitthvað þá förum við aftur að skjóta þá og varpa sprengjum,“ segir Trump. Hann bætti við að írönsk stjórnvöld hafi hagað sér illa í 47 ár.
G7 er hópur sjö helstu iðnríkja heims sem hittist árlega og ber saman bækur. Þau eru: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía, Japan, Kanada og Þýskaland - Evrópusambandið er óformlegur meðlimur.
Í ár var fundurinn í Évian í Frakklandi og honum lýkur núna í hádeginu. Trump hefur boðað sinn eigin blaðamannafund klukkan hálf þrjú í dag.